Bandaríska söngkona Carrie Underwood greindi frá því á samfélagsmiðlum í gærkvöldi að hún ætti von á barni.
Hún og eiginmaður hennar, hokkíleikmaðurinn Mike Fisher, fengu aðstoð frá hundum sínum til þess að tilkynna gleðifréttirnar. Á mynd sem birt er á Twitter-síðu hennar sést hún með hundana í fanginu. Annar þeirra (tíkin) er í peysu með áletruninni: Ég er að verað stóra systir en hinn hundurinn er í peysu með áletruninni: Ég er að verða stóri bróðir.
In honor of "Labor" Day...Ace & Penny would like to make an announcement. Their parents couldn't be happier! pic.twitter.com/bROrzuHJ4J
— Carrie Underwood (@carrieunderwood) September 1, 2014