Hollywood-ofurparið Jennifer Garner og Ben Affleck halda hjónabandinu spennandi með hjálp Polaroid-myndavélar.
Garner og Affleck eru pínulítið gamaldags þegar kemur að tækni en þau kjósa að nota Polaroid-myndavél í staðin fyrir stafræna myndavél í svefnherberginu.
Garner segir þau hjónin eiga stafla af krassandi ljósmyndum. „Polaroid-myndir! Þannig gerum við þetta á Affleck-heimilinu,“ sagði Garner og hló þegar blaðamaður Vanity Fair spurði hana hvernig þau hjónin héldu sambandinu áhugaverðu.
Garner er þessa stundina í óða önn við að kynna nýjustu kvikmynd sína, Men, Women & Children, sem fjallar meðal annars um hvaða áhrif vinsælir samskiptamiðlar hafa á sambönd fólks.