Seldi húsið fyrir 457 milljónir

Mila Kunis seldi nýverið húsið sitt.
Mila Kunis seldi nýverið húsið sitt. AFP

Leikkonan Mila Kunis hefur nú selt hús sitt sem hún hefur búið í síðan árið 2008. Kunis fékk 457 milljónir króna fyrir eignina.

Kunis er flutt inn með kærasta sínum, Ashton Kutcher, en þau byrjuðu saman í apríl árið 2012 og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni.

Á gamla heimili Kunis er bíósalur, sundlaug og fimm svefnherbergi svo eitthvað sé nefnt.

Kutcher og Kunis eru mjög spennt yfir sínu fyrsta barni sem er væntanlegt í heiminn á næstu vikum. Kutcher er þó sagður örlítið stressaður og hefur keyrt margoft frá sameiginlegu heimili þeirra Kunis að spítalanum til að sjá hversu langan tíma ferðin tekur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren