Hönnnuðurinn og raunveruleikastjarnan Lauren Conrad giftist unnusta sínum, lögmanninum William Tell, í Kaliforníu á föstudag.
Í frétt MTV kemur fram að Lo Bosworth, sem kom fram ásamt Conrad í raunveruleikaþáttunum Laguna Beach, hafi verið á meðal níu brúðarmeyja, sem allar klæddust kjólum sem Conrad hannaði sjálf.
Hjónakornin hittust fyrst á blindu stefnumóti á Valentínusardaginn 2012 en vinir þeirra komu þeim saman. Conrad tilkynnti um trúlofunina í október á síðasta ári en hún hefur áður sagt að bónorðið hafi komið henni algjörlega í opna skjöldu. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri að fara gerast. Ég hélt að hann ætlaði að klára lögfræðina áður,“ sagði Conrad í samtali við Cosmopolitan og bætti við: „Hann spurði ekki einu sinni vini mína hvað þeim fyndist um hringinn sem var ansi djarft af honum. Hann sagði: „Veistu ég veit að þú ert hrifin af mér og ég elska þig. Þetta er fullkomið.“