Tónlistamaðurinn Nick Jonas kveðst ekki ganga lengur með skírlífshring til merkis um það að hann ætli ekki að stunda kynlíf fyrir brúðkaup.
Nick Jonas, sem er 22 ára, er að hitta fyrrverandi ungfrú heim, Oliviu Cuplo. Hann hefur gengið með skírlífshringinn síðan hann var 11 ára en hann hlaut trúarlegt uppeldi.
„Þetta er eitthvað sem ég er ekki að gera lengur,“ sagði Jonas í viðtali við HuffPostLive þegar hann var spurður út í skírlífshringinn sem hann og bræður hann gengu allir með á sínum tíma.
„Ég trúi enn á Guð. Samband mitt við hann er mér mikilvægt.“