Draumur aðdáanda þáttanna um vinina sex í New York, Friends, geta nú látið drauminn um að fá sér sæti og gæða sér á kaffi á kaffihúsinu Central Perk rætast. Eins og að þeir sem hafa horft á einn eða fleiri þætti vita, þá áttu vinirnir ófáar stundir á kaffihúsinu og rættu allt milli himins og jarðar.
Warner Bros og Eight O’Clock Coffee bjóða áhugasömum að setjast inn á kaffihúsið, sem verður þó aðeins starfandi til 18. október nk., gæða sér á ókeypis kaffi og minnast góðra stunda með vinunum. Reynt verður að hafa kaffihúsið sem líkast hinu eina sanna Central Perk.
Kaffihúsið verður í Soho. James Michael Tyler, betur þekktur sem Gunther, starfsmaður kaffihússins, mun koma við á kaffihúsinu en ekki verður gefið upp hvenær hann leggur leið sína þangað.