Vegna allnokkurrar eftirspurnar, áskorana og uppsölu á öllum vígstöðvum hefur Baggalútur ákveðið að bæta við auka-auka-jólatónleikum í Háskólabíói sunnudaginn 14. desember kl. 17 og 21. Miðasala er hafin á midi.is.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Baggalúti.
Vefsíðan baggalútur.is hefur verið í löngu sumarleyfi undanfarna mánuði. Ritstjórn Baggalúts hefur nú pantað nýyddaða blýanta, Bragakaffi og Tippex - og er því til í þann mikla átakavetur sem er framundan. Vefurinn opnar á nýjan leik miðvikudaginn 1. október.