Söngkonan FKA Twigs er sögð eiga í ástarsambandi við leikarann Robert Pattinson en eftir að sá orðrómur komst á kreik hefur söngkonan fengið ótal rasísk ummæli og skilaboð í gegnum Twitter-síðu sína.
„Ég er vikilega undrandi og mér býður við þeim rasísku ummælum sem hafa hrúgast inn á Twitter-síðuna mína undanfarið. Rasismi er óviðunandi úti í hinum raunverulega heimi og á internetiu,“ skrifaði Twigs á Twitter.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem söngkonan verður vör við rasisma því hún var lögð í einelti sem barn þar sem hún var eini svarti nemandinn í skólanum sem hún gekk í. „Fólk sagði hræðilega hluti við mig vegna einhvers sem ég gat ekkert gert að. En það er allt í lagi. Lífið á ekki að vera auðvelt, er það nokkuð?“ Sagði FKA Twigs í viðtali sem birtist í Dazed and Confused í sumar.