Amber Rose, fyrrverandi kærasta Kanye West, hefur ekki átt sjö dagana sæla því hún er að skilja við eiginmann sinn, Wiz Khalifa. Þau standa nú í forræðisdeilu en saman eiga það eins árs gamlan son.
Rose fer fram á fullt forræði yfir syni þeirra en Khalifa fer fram á sameiginlegt forræði.
Hvorki Rose né Khalifa hafa tjáð sig almennilega um skilnaðinn en samkvæmt heimildum E! News talar Khalifa um í skilnaðarpappírunum að „ósætti“ sé ástæðan fyrir skilnaðinum. Sá orðrómur um að Rose hafi haldið framhjá Khalifa hefur þó komist á kreik.
„Vinsamlegast hættið að búa til sögur. Ég myndi aldrei halda framhjá eiginmanni mínum, ég held að þið vitið það. Því miður getur fyrrverandi eiginmaður minn ekki sagt það sama. Ég er niðurbrotin,“ skrifaði Rose á Twitter í vikunni.