Ölvaður ökumaður keyrði aftan á Jennifer Lopez

Jennifer Lopez og Leah Remini rúntuðu um Malibu um helgina.
Jennifer Lopez og Leah Remini rúntuðu um Malibu um helgina. Instagram

Jennifer Lopez og vinkona hennar, leikkonan Leah Remini, lentu í umferðaróhappi á laugardaginn í Los Angeles.

Þær Lopez og Remini eru sagðar hafa verið að bíða á rauðu ljósi þegar keyrt var aftan á þær. Talið er að bílstjórinn sem keyrði aftan á þær hafi verið ölvaður en hann flúði vettvang þegar þær Lopez og Remini stigu út úr bílnum. Minniháttar skemmdir urðu á jeppanum sem er í eigu Lopez.

Ölvaði ökumaðurinn komst þó ekki langt undan því lögreglan stoppaði hann skömmu seinna og færði hann í fangageymslu.

Lopez var fljót að tilkynna umheiminum um umferðaróhappið því hún birti sjálfsmynd nokkrum mínútum eftir að atvikið átti sér stað og lýsti atburðinum.

Talið er að börn þeirra Lopez og Remini hafi verið í bílnum með þeim en allir sluppu ómeiddir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren