Lizzy Pattinson, systir leikarans Roberts Pattinsons, tók þátt í bresku söngvakeppninni The X-Factor en hún var dæmd úr leik á sunnudaginn.
Lizzy gekk mjög vel í fyrstu áheyrnarprufu keppninnar og voru dómararnir hrifnir af frammistöðu hennar, meðal dómara keppninnar er hinn ákveðni Simon Cowell. Lizzy gekk vel í keppninni þar til á sunnudaginn þar sem keppendur reyndu að heilla Cowell á heimili hans í von um að komast í tólf manna úrslit.
Stuttu eftir að í ljós kom að Lizzy væri dottin úr keppninni skrifaði hún einlæg skilaboð til aðdáenda sinna á Facebook. „Þakka ykkur kærlega fyrir skilaboðin og stuðninginn. Vá! Þetta var æðisleg reynsla, krefjandi og óhugnanleg, en aðallega skemmtileg. Ég hlakka til að færa ykkur ný lög.“