Hætt saman en leika í kynlífssenu

Nicholas Hoult og Jennifer Lawrence á Comic-Con ráðstefnu í sumar.
Nicholas Hoult og Jennifer Lawrence á Comic-Con ráðstefnu í sumar. AFP

Þessa dagana yfir standa tökur á kvikmyndinni X-Men: Apocalypse en fyrir þá kvikmynd neyðast þau Jennifer Lawrence og Nicholas Hoult til að leika saman í kynlífssenu. Þetta væri svo sem ekki frásögur færandi nema vegna þess að Lawrence og Hoult voru eitt sinn par.

Lawrence og Hoult hættu saman fyrr á þessu ári en nú þurfa þau að fallast í faðma aftur fyrir hvíta tjaldið. Bæði eru þau komin í nýtt samband.

Nýi kærasti Lawrence er enginn annar en söngvarinn Chris Martin og þá hefur sá orðrómur komist á kreik að Hoult sé að hitta leikkonuna Kristen Stewart.

Handritshöfundar X-Men: Apocalypse eru sagðir hafa verið spenntir fyrir því að láta Lawrence og Hoult leika hvort á móti öðru þegar þau voru ástfangin, en eftir að þau hættu saman urðu hlutirnir flóknari. „Fyrr á þessu ári hljómaði þetta sem mjög góð hugmynd. En nú eru þau hætt saman og það er of seint að skrifa handritið upp á nýtt. Þau eru fagmannleg og ætla að láta þetta ganga upp,“ sagði heimildarmaður dagblaðsins Sun.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes