Lík leikkonunnar væntanlega fundið

Misty Upham
Misty Upham

Lögregla í Washingtonríki telur að hún hafi fundið lík leikkonunnar Misty Upham en hennar hefur verið saknað í tíu daga.

Upham, sem meðal annars er þekkt fyrir leik í August: Osage County og Django Unchained, er 32 ára en fjölskylda hennar segir að hún hafi verið í sjálfsvígshugleiðingum er hún hvarf. Líkið fannst í gljúfri við White River í gærkvöldi. Ekki liggur fyrir niðurstaða réttarmeinafræðings um hvort líkið sé af Upham en samkvæmt bandarískum fjölmiðlum virðist lítill vafi vera á því. Taska með skilríkjum hennar fannst á sama stað.

Faðir hennar, Charles Upham, sagði í viðtali við útvarpsstöð í ríkinu að dóttir hans hefði verið í miklu ójafnvægi og ekki tekið lyfin sín í einhvern tíma. Hún er með geðhvörf (tvískautaröskun - bipolar disorder) og kvíðaröskun. 

Fjölskylda Upham segir að hún hafi flutt til Seattle til þess að aðstoða föður sinn sem hafði fengið heilablóðfall. Síðast sást til henn­ar er hún yf­ir­gaf íbúð syst­ur sinn­ar í Muckles­hoot í Washingt­on­ríki hinn 5. októ­ber.

 Leikkonunnar saknað í viku

Misty Upham
Misty Upham AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir