Sjónvarpsstjarnan Kris Jenner hefur ekki hugmynd um hvern fyrrverandi eiginmaður hennar, Bruce Jenner, er að hitta og vill ekki vita það.
Fregnir herma að Bruce sér byrjaður að deita aftur en hann og Kris hættu endanlega saman í október eftir 23 ára hjónaband. Fregnir herma að Bruce sé að hitta góða vinkonu Kris, Ronda Kamihira, en Kris heldur því fram að henni sé alveg sama hvort það sé satt eða ekki.
„Mér er alveg sama hvað Bruce gerir í sínum frítíma,“ sagði Kris í KIIS-FM útvarpsþættinum. „Við höfum verið skilin í langan tíma.“
„Hann er frábær náungi og æðislegur faðir og við erum góðir vinir.“
Sagan segir þó að Kris hafi verið miður sín þegar hún frétti að Bruce og Ronda Kamihira væru mögulega að slá sér saman.