Fregnir herma að söngkonan Nicole Scherzinger hafi stokkið út úr limmósínu á ferð nýverið með þeim afleiðingum að bílstjóri glæsibifreiðarinnar keyrði aftan á annan bíl.
Sagan segir að Scherzinger hafi skipað bílstjóranum að stöðva samstundis áður en áreksturinn varð. „Hún sat í bílnum og var á leiðinni á hótelið sitt þegar henni fór að líða illa,“ sagði heimildamaður The Sun dagblaðsins.
„Hún öskraði á bílstjórann og sagði honum að stöðva en það var ómögulegt. Hún hlýtur að hafa verið mjög ringluð því hún opnaði hurðina skyndilega.“
Bílstjórinn neitaði að stöðva vegna þungrar umferðar að sögn heimildamannsins en Scherzinger lét það ekki stöðva sig og stökk út úr bílnum á ferð. Bílstjóranum var vissulega mjög brugðið og keyrði aftan á annan bíl.
Ekki fylgdi sögunni hvort Scherzinger hafi slasast.