Í seinustu viku deildi Bubbi Morthens ljósmynd af rúskinnsjakka á Facebook-vegg Þórunnar Antoníu og benti henni á hversu fallegur jakkinn er.
„Hann er guðdómlegur! Er á höttunum eftir svona flík bara nokkrum númerum minni,“ skrifaði Þórunni við myndina af jakkanum sem er brúnn með kögri.
Bubbi kvaðst þá taka jakkann reglulega fram til að dást að honum. Jakkinn vakti mikla lukku á meðal Facebook-vina Bubba en 84 vina hans hafa líkað við myndina.
Jakkinn vinsæli virðist vera sá sami og Bubbi klæddist þegar hann tók lagið Kossar án vara í þættinum Óskastund árið 1992.