Á Justin Timberlake von á barni?

Justin Timberlake og Jessica Biel.
Justin Timberlake og Jessica Biel. AFP

Sögusagnir hafa verið uppi um það að söngvarinn Justin Timberlake og eiginkona hans, leikkonan Jessica Biel, eigi von á barni. Samkvæmt heimildum RadarOnline.com hafa þessar sögusagnir nú verið staðfestar.

Heimildamaður RadarOnline er ónefndur, en samkvæmt honum er Biel komin að minnsta kosti þrjá mánuði á leið og á von á sér í apríl. 

Grunur vaknaði um það að Biel væri ólétt þegar myndir náðust af henni fyrir skemmstu þar sem hún virtist vera með óléttubumbu. 

Annar heimildamaður sagði þetta mikil gleðitíðindi þar sem Biel hefur ekki átt auðvelt með að verða ólétt áður. „Jessica hefur gengið í gegnum erfiða tíma þegar það kemur að því að eignast barn, svo það kemur ekki á óvart að hún sé að leyna því frá almenningi að hún sé ólétt núna.“

Ef það reynist rétt að Biel, sem er 32 ára sé ólétt, þá er þetta fyrsta barn hennar og Timberlake, sem er 33 ára. Þau giftu sig árið 2012. 

Justin Timberlake tryllti lýðinn í Kórnum í Kópavogi í sumar.
Justin Timberlake tryllti lýðinn í Kórnum í Kópavogi í sumar. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes