Breska söngkonan Fka Twigs og leikarinn Robert Pattinson eru nýtt par. Þau eru sögð yfir sig ástfangin en Fka Twigs á þó erfitt með að sætta sig við alla athyglina sem fylgir því að vera í sambandi með Pattinson.
Hún segir þessa skerðingu á friðhelginni vera „ógeðslega“. Fka Twigs og Pattinson byrjuðu saman í sumar en fljótlega varð hún skotmark afbrýðisamra aðdáanda Pattinsons. Twigs fékk þá ótal ljót skilaboð þar sem hún var kölluð öllum illum nöfnum.
„Mér býður við þessum rasísku skilaboðum sem hafa einkennt twittersíðu mína,“ sagði Twigs meðal annars.
Twigs segir erfitt að takast á við alla athyglina en hún telur það þó þess virði vegna þess að hún er ástfangin af Pattinson. „Jákvæðnin sem ég fæ úr sambandi mínu gerir allt hitt þess virði,“ sagði Twigs í viðtali við USA Today.