Bandaríska sendiráðið á Íslandi óskar nú eftir tillögum að kjarnyrtum, íslenskum orðasamböndum sem enskumælandi starfsmenn sendiráðsins geta spreytt sig á. Ætlar sendiráðið að búa til annað myndband eins og gert var í fyrra og vakti mikla lukku.
Í fyrra fengu þeir að spreyta sig á orðatiltækjum á borð við: Þeir sletta skyrinu sem eiga það, það læra börnin sem fyrir þeim er haft, enginn verður óbarinn biskup og svo að lokum hið sívinsæla orðatiltæki, þetta reddast.