Sumir ökumenn virðast ekki átta því að þeir eru ekki einir í umferðinni. Þeim finnst kannski fátt eðlilegra en að leggja í tvö stæði, og fækka þannig lausum stæðum fyrir aðra ökumenn.
Þessi prakkari ákvað að mála á bíla ökumannanna hvar línan milli stæðanna er. Málningin er að sjálfsögðu þess eðlis að henni má ná af með því að strjúka yfir lakkið. Stæðaníðingarnir voru þrátt fyrir það ekki sáttir við þetta uppátæki.