Hópur vina á Bretlandi ákvað að senda lambakótelettu út í geiminn til að vekja athygli á bók sem einn þeirra skrifaði og ber titilinn „Kjötgeimur“. Kótelettan var fest við gaffal og myndavél og var svo send á loft með veðurloftbelg.
Alls náði tandoori-kótelettan, sem var fengin af indverskum veitingastað í London sem styrkti uppátækið, 25 kílómetra hæð. Kjötstykkið og myndavélin komu á endanum niður á akri í Dorset á Suðvestur-Englandi þar sem kótelettan mætti örlögum sínum undir þreskivél bónda.
Afraksturinn af uppátækinu má sjá á myndbandinu hér fyrir neðan.