Eiginkona sjónvarpskokksins Gordons Ramsays segir að það hafi verið átakanlegt að komast að því að faðir hennar og bróðir væru kerfisbundið að svíkja fé út úr eiginmanni hennar.
Tana Ramsay sagði frá þessu fyrir framan dómara í gær en eiginmaður hennar hefur höfðað mál gegn tengdaföður sínum, Christopher Hutcheson, fyrir að falsa undirskrift sína með þar til gerðri vél.
Ramsay heldur því fram að vélin hafi verið notuð án hans vitundar til að skrifa undir skjöl sem gerðu hann ábyrgan fyrir hárri leigu húsnæðis kráar í London. Ramsay fer fram á að dómarinn lýsi undirskriftina ekki löglega og hann því ekki ábyrgan fyrir að greiða húsaleiguna. Skrifað var undir leigusamninginn árið 2007.
Leikstjórinn Gary Love, sem á krána sem um ræðir, segir að ásakanir Ramsays séu fáránlegar.
Tengdafaðir Ramsays var fjármálastjóri fyrirtækis hans til ársins 2010. Þá rak Ramsay hann sem og bróður eiginkonunnar, Adam.