Frumsýning á nýju myndbandi Ylju

Hljómsveitin Ylja frumsýnir á mbl.is fyrsta myndbandið sem gert er við lag af nýju plötu hljómsveitarinnar, Commotion. Myndbandinu var leikstýrt af Þóru Hilmarsdóttur.

 Platan er önnur plata Ylju og kom út 6. nóvember. Hljómsveitin heldur útgáfutónleika í Kaldalóni í Hörpu í kvöld.

Hljómsveitin segir nafn plötunnar lýsandi fyrir þær breytingar sem urðu á hljómsveitinni við gerð plötunnar, og fyrir það ferli sem hún gekk í gegnum við sköpun hennar.

Ylja var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fyrra í flokknum Bjartasta vonin. Nýja platan er þó töluvert frábrugðin þeirri fyrri, þó svo að raddir Bjarteyjar og Gígju fái enn að njóta sín, eins og mbl.is vakti athygli á í umfjöllun um Airwaves fyrir skemmstu.

Nýir meðlimir hljómsveitarinnar setja sterkan svip á þennan nýja og stóra hljóðheim sem birtist hlustandanum á nýju plötunni.

Á útgáfutónleikunum, sem verða í Kaldalóni í Hörpu í kvöld, verður öllu tjaldað til og mun hljómsveitin njóta liðsinnis ýmissa tónlistarmanna við flutning á lögum af nýju plötunni.  Hér má nálgast miða á tónleikana.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes