Skrifaði „nauðgari“ á stjörnu Bills Cosbys

Skemmdarvargur skrifaði „nauðgari“ á frægðarstjörnu leikarans Bills Cosbys á Hollywood Walk of Fame í gær. Viðkomandi skrifaði orðið þrisvar yfir stjörnuna.

Viðskiptaráð Hollywood lét þrífa hana í snatri og sagði stjörnur á þessari fjölsóttu götu vera til minningar um jákvæð verk þeirra sem þar ættu stjörnu. „Þegar fólk er ósátt við einhvern af þeim sem hafa fengið þessa viðurkenningu viljum við frekar að þeir beini reiði sinni annað, en skemmi ekki minnismerki sem þetta,“ segir í tilkynningu frá þeim.

Um 20 konur hafa stigið fram og ásakað Bill Cosby um ýmiss konar kynferðisbrot gegn sér. Flest brotin áttu sér stað fyrir nokkrum áratugum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes