Leikarinn Jamie Dornan leikur kaupsýslumanninn Christian Grey í kvikmyndinni Fifty Shades of Grey en kvikmyndin er gerð eftir samnefndri bók sem segir m.a. frá erótískum ævintýrum Greys.
Dornan kveðst hafa lagst í mikla undirbúningsvinnu þegar hann fékk hlutverkið en hann skoðaði t.d. kynlífsdýflissu á heimili ókunnugs manns. Dornan viðurkennir að sú upplifun hafi verið frekar óþægileg.
„Ég fór þangað, hann bauð mér bjór, og svo gerðu þau...það sem þau eru vön að gera,“ sagði Dornan í viðtali við ELLE UK. „Þessi maður varð svo ráðgjafi minn fyrir myndina,“ útskýrði Dornan.
Dornan viðurkennir að honum hafi liðið mjög skringilega eftir að hafa fylgst með fólkinu í kynlífsdýflissunni. „Síðan fór ég heim til eiginkonu minnar og nýfædds barns...ég fór í langa sturtu áður en ég snerti þau.“