Söngkonan Taylor Swift hélt upp á afmælið sitt um helgina og bauð stjörnum eins og Justin Timberlake, Beyoncé, Jay Z, Sam Shith og Karlie Kloss í veisluna. Swift birti að sjálfssögðu ljósmyndir frá veislunni á Instagram-síðu sinni en á einni myndinni má sjá Justin Timerlake með grímu á höfðinu sem líkist kúk með augu og tungu.
Gríman kemur úr versluninni Big Mouth Toys en talsmaður þeirrar verslunar segir sölu á grímunni hafa aukist um 315% síðan Swift birti myndina af Timberlake. Þeir sem þrá að eignast kúka-grímuna vinsælu þurfa að hafa hraðar hendur því talsmaður Big Mouth Toys segir grímuna nánast uppselda.
Áhugasamir geta skoðað vefverslun Big Mouth Toys á Amazon.com en þar kostar gríman rúma 20 dollara eða um 2500 krónur.