Sjónvarpskonan Sharon Osbourne lenti í afar vandræðalegu atviki í gær en hún missti gervitönn í beinni útsendingu.
Sharon var að segja sögu af eiginmanni sínum, Ozzy Osbourne, þegar hún greip skyndilega um munninn og gargaði einhver skammaryrði. „Tönnin mín er að detta út,“ sagði Sharon sem var afar óánægð því hún borgaði fúlgufjár fyrir gervitönnina að eigin sögn.