Hvað gefurðu barninu sem á allt? Nú auðvitað átta milljóna króna kórónu.
Dóttir Kim Kardashian og Kanye West, North West, á nú þegar allt sem hugurinn girnist, þ.á.m. Chanel handtösku og sérhannaðar Balmain flíkur. Því nægja engar Barbie dúkkur eða venjulegir dótabílar litlu prinsessunni að mati föður hennar. Daily mail segir Kanye West hafa splæst í átta milljóna króna kórónu skreytta demöntum í jólagjöf handa dóttur sinni og þar að auki eftirlíkingu í barnastærð af svarta jeppanum sínum.
Auðvitað hefði hann getað gefið henni jeppa í fullri stærð eða jafnvel litla eyju ef því er að skipta en Kim hefur hinsvegar slegið því föstu að hún muni aldrei ofdekra North litlu og að hún muni þurfa að vinna fyrir því sem hún vill eignast. Sú uppeldisstefna gengur greinilega prýðilega.