Í gærkvöldi kom Mike Myers fram í upphafi sjónvarpsþáttarins Saturday Night Live sem hinn illi bróðir Austin Powers, Dr. Evil.
Dr. Evil ávarpaði Kim Jon-un, leiðtoga Norður-Kóreu og Sony og gerði stólpagrín af hvoru tveggja vegna þeirra hótanna er komið hafa fram vegna kvikmyndarinnar The Interview.
Dr. Evil segir Sony og Norður-Kóreu sverta mannorð illra stofnanna og að fylgjast með þeim rífast vegna grínmyndar sé eins og að sjá sköllótta menn rífast um greiðu. Hægt er að horfa á ræðu Dr. Evil í heild sinni hér að neðan.