Lance Bass, fyrrum meðlimur strákasveitarinnar NSync gekk í það heilaga um helgina. Bass gekk að eiga unnusta sinn, Michael Turchin í Los Angeles á laugardaginn. Meðal gesta í veislunni voru fyrrum hljómsveitarfélagar Lance, Joey Fatone, Chris Kirkpatrick, og JC Chasez.
Brúðkaupið verður sýnt á sjónvarpsstöðinni E! 5. febrúar næstkomandi og er þetta í fyrsta skipti sem bandarísk sjónvarpsstöð sýnir stjörnubrúðkaup á milli tveggja karlmanna. JC og leik- og söngkonan Kristin Chenoweth sungu á meðan Lance og Michael dönsuðu fyrsta dansin sem hjón.
Ung frænka Lance söng einnig í veislunni NSync lagið „This I Promise You“. Lance og Michael hafa verið saman síðan í desember 2011 en trúlofuðu sig í september 2013.
<div> <div></div> </div><a href="https://instagram.com/p/w1e74TxsdY/" target="_top">Today I marry the man of my dreams. He makes me smile; he makes my heart melt; he makes me....me. #LanceLovesMichael</a>
A photo posted by Lance Bass (@lancebass) on Dec 12, 2014 at 8:44am PST