Miley Cyrus er berbrjósta á mynd á síðunni en ekki sést í geirvörturnar. Síðan þá hefur myndin verið fjarlægð af síðunni og velta menn nú vöngum yfir því hvort söngkonan hafi þótt of klæðlítil fyrir samfélagsmiðilinn en hingað til hefur Cyrus ekki verið feimin við að sýna bert hold á myndum. Má þar minna á tónlistarmyndband hennar frá því í vor þar sem hún sprangaði um án klæða fyrir utan svart límband yfir geirvörturnar og klæðlitlar nærbuxur.