Rapparinn og Grammy-verðlaunahafinn Macklemore og unnusta hans Tricia Davis eiga von á fyrsta barni sínu. Þessum gleðifréttum deildi parið í gær með myndbandi á YouTube eftir að orðrómur hafði komist á kreik um að Davis væri ólétt.
„Fjölmiðlar hafa mikið spáð um ákveðna stóra frétt í okkar lífi, svo við ákváðum að deila því með ykkur sjálf,“ segir parið í myndbandinu. Í myndbandinu má sjá Davis fara í ómskoðun ásamt Macklemore.
Innan örfárra klukkustunda frá birtingu myndbandsins hafði parið fengið hundruð hamingjuóska frá aðdáendum.