Yfir 3.500 manns hafa nú lækað facebooksíðuna „Sama myndin af Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum degi“.
Innihald síðunnar er nákvæmlega það sem nafnið segir til um því stjórnendur hennar hafa birt nákvæmlega sömu myndina af leikaranum Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum einasta degi frá því 2. janúar þessa árs.
Uppátækið hefur vakið mikla lukku þeirra sem veitt hafa síðunni velþóknun sína í formi smells á „like“-hnappinn og koma reglulega upp spurningar frá spenntum aðdáendum um hvaða mynd birtist næst. Hver mynd fær yfirleitt í kringum 500 „like“ og jafnan eru yfir 10 athugasemdir þar sem aðdáendur síðunnar velta fyrir sér breyttum hárstíl eða augnaráði.
Óljóst er hverjir standa á bak við síðuna enda birtast aðeins nauðsynlegustu upplýsingar á henni, það er sama myndin af Ingvari E. Sigurðssyni.
Hægt er að fylgjast með facebooksíðunni með því að smella hér.