Níunda plata Bjarkar, Vulnicura, sem átti að koma út í mars, kom óvænt út á þriðjudaginn, eftir að henni hafði verið lekið á netið. Platan hefur hlotið góðar viðtökur og jákvæða dóma en hérna koma nokkrar tilvitnanir úr dómum um plötuna.
„Ótrúlegt listaverk.“ David Smyth hjá Evening Standard.
„Björk fokking skilur þig.“ Elizabeth Sankey hjá Noisey.
„Hrá eftirvænting.“ Helen Brown hjá The Telegraph.
„Björk er að horfa djúpt í augu þín, strjúka þér um vangann og segja þér það sem þú hefur alltaf vitað, alltaf upplifað en líklega aldrei sett í orð.“ Elizabeth Sankey hjá Noisey.
„Ein af bestu plötum Bjarkar.“ Daniel Paton hjá MusicOMH.
Þá fékk platan 8,9 í einkunn frá Katherine St. Asaph hjá Pitchfork. Dóm Asaph má lesa í heild sinni á Pitchfork.
Vulnicura „ótrúlegt listaverk“