Breski leikarinn Stephen Fry og eiginmaður hans, Elliott Spencer, gengu í hjónaband fyrr í þessum mánuði. Nú hlakka þeir til að stofna fjölskyldu.
Þegar blaðamaður The Sun spurði Fry út í barneignir kvaðst hann ætla að njóta hveitibrauðsdaganna í bili en sagði jafnframt að þeir myndu líklegast stofna fjölskyldu í náinni framtíð. „Heyrðu aftur í mér í sambandi við það,“ sagði Fry sem gat ekki gefið skýrt svar um framtíðina.
Fry er himinlifandi í hjónabandinu. „Þetta er frábær tilfinning,“ sagði Fry sem hefur verið ötull baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra.
Myndir úr brúðkaupi Stephens Frys
Stephen Fry genginn í hjónaband
Stephen Fry og tengdapabbinn jafnaldrar