Fyrri undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins var haldin í Háskólabíói í gærkvöldi og fór það svo að lögin „Í síðasta skipti“, „Piltur og stúlka“ og „Í kvöld“ voru kosin áfram af áhorfendum.
Tístarar landsins tóku venju samkvæmt vel í viðburðinn og merktu myndir sínar og hugleiðingar með #12stig.
Bragi Valdimar vakti athygli fyrir skemmtilega greiningu á fyrri keppnum inn á milli atriða en einhverjir veigruðu sér við að tjá sig um orðbragð Baggalútsins.
Ekki séns að ég segi eitthvað kaldhæðið um @BragiValdimar. Nenni ekki að fá eitthvað fáránlega hnyttið kombakk #12stig
— Atli Fannar (@atlifannar) January 31, 2015
Atli Fannar var hins vegar ekki hræddur við að hóta öðrum tísturum sem honum fannst tjá sig fullmikið um kynjakvóta.
Ef ég les annað tíst um kynjahlutföll kynna keppninnar þá deyr þessi kettlingur. #12stig pic.twitter.com/Drxf9nm0xx
— Atli Fannar (@atlifannar) January 31, 2015
Kynnar kvöldsins þóttu svo glæsilegur kvenkostur að ekki var hægt að velja eina þeirra til að dást að umfram aðrar.
Fjölkvæni er frekar skrítin pæling en ekki með öllu óskiljanleg. #12stig pic.twitter.com/jo4nfXf1ro
— Pétur Marteinn (@PeturMarteinn) January 31, 2015
Þegar Friðrik Dór flutti lag sitt í keppninni var sviðið umkringt ungum stúlkum sem störðu á hann stórum aðdáunaraugum. Stefán Snær tengdi við upplifun stúlknanna.
Ég upplifði aldrei nein krúttleg ástarmóment á grunnskólaböllum. Var of upptekinn að mynda mosh pit og vera 1,30m á hæð. #12stig
— Stefán Snær (@stefansnaer) January 31, 2015
Margrét Erla Maack setti klæðnað keppenda í verslunarlegt samhengi.
AH Þess vegna er Kronkronlagersalan á Laugavegi tóm! #12stig
— margrét erla maack (@mokkilitli) January 31, 2015
En Pétur Jónsson var með það á hreinu hvernig velja átti sigurvegara.
Okkar á milli, þá er ég að twerka við öll lögin til að sjá hvert þeirra hefur sterkasta twerkfaktorinn. #12stig
— Petur Jonsson (@senordonpedro) January 31, 2015
Gunnar Már veit líka nákvæmlega afhverju valið á sigurvegaranum skiptir land og þjóð (lesist foreldra og leikskólakennara) gríðarlega miklu máli.
Haldið kannski að ég sé að djóka en Eurovision er dauðans alvara þegar maður á börn sem munu syngja sigurlagið 5 milljón sinnum á dag #12stig
— Gunnar Már (@gunnare) January 30, 2015