Víða í Bandaríkjunum tíðkast að brúðhjón flytji hvort öðru heimagerð brúðkaupsheit þar sem þau tala um ást sína á hvort öðru og lofa öllu fögru fyrir komandi hjúskap.
Þau Whitney Kay og Brian Scott gera einmitt það, með tárin í augunum í myndbandinu hér að neðan, en eins og það væri ekki nóg tekur Brian upp á því í að flytja dóttur Whitney, Brielle, einnig sérstök heit við athöfnina.
„Ég lofa að halda alltaf í höndina á þér og valhoppa með þér niður götuna og gera líf þitt þægilegt,“ byrjar hann ræðuna í því sem hann krýpur við hlið Brielle.
Þetta myndband er líklega allur væmniskammturinn sem lesendur þurfa fyrir vikuna en til þess að draga aðeins úr ástarhrollnum má benda á að Brielle virðist finnast þessi ræðuhöld stjúpa síns frekar vandræðaleg.