Um helgina mættu 764 hreinræktaðir hundar af 82 tegundum á alþjóðlega hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands á Smáratorgi. Gestum gefst kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur og sýnendur, auk þess sem á staðnum er fjöldinn allur af sölu- og kynningabásum þar sem boðið er upp á margs konar hluti sem tengjast hundarækt.
Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er megintilgangur hundasýninga að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu. Enn fremur segir í tilkynningunni að innan félagsins sé öflugt barna- og unglingastarf og að þessu sinni taka 22 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda.