Hefur verið edrú í 14 ár

Leikararnir Anna Paquin og Stephen Moyer fara með hlutverk í …
Leikararnir Anna Paquin og Stephen Moyer fara með hlutverk í þáttunum True Blood. AFP

Leikarinn Stephen Moyer, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum True Blood, opnaði sig nýverið á ráðstefnu hjá Clare-meðferðarstofnuninni í Kaliforníu og greindi frá því að hann hefði glímt við áfengisfíkn í áraraðir.

Hinn 45 ára Moyer sagði frá því að hann hefði farið í meðferð við vandamáli sínum fyrir 14 árum og náð að halda sér allsgáðum síðan þá. Þetta er í fyrsta sinn sem hann talar um fíkn sína opinberlega. Moyer viðurkenndi að hafa drukkið mikið á þeim tíma sem hann starfaði í leikhúsi. Hann lýsti því hvernig hann fór í ákveðna vímu þegar hann stóð uppi á sviði og reyndi svo að halda vímunni við með áfengi þegar hann steig af sviðinu.

„Sjálfsfyrirlitning hvetur mann til að drekka og svo þegar maður er orðinn edrú þá fylgir því mikil skömm að þurfa að horfast í augu við gallana sína. Þetta snýst allt um fræðslu og að losna við skömmina,“ sagði Moyer.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes