Osbourne er hætt en hver tekur við?

Kelly Osbourne hefur sagt upp starfi sínu sem einn þáttastjórnandi …
Kelly Osbourne hefur sagt upp starfi sínu sem einn þáttastjórnandi Fashion Police. mbl.is/AFP

Sjónvarpskonan Kelly Osbourne tilkynnti um helgina að hún væri að hætta sem einn stjórnandi þáttarins Fashion Police og nú loga samfélagsmiðlar því fólk vill vita hver mun koma í hennar stað. Einhverjir eru að vonast til að raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian taki við starfi Osbourne.

Osbourne er sögð hafa íhugað lengi að hætta áður en hún lét til skara skríða. Það sem mun hafa fyllt mælinn hjá Osbourne eru rasísk ummæli samstarfskonu hennar, Giuliana Rancic, sem hún lét falla í seinustu viku.

„Hún ætlaði að taka starfinu seinast þegar henni var boðið það en hætti svo við. Hún íhugar þetta kannski núna en tilboðið þyrfti að vera mjög gott,“ sagði vinur Khloe samkvæmt heimildum Us Weekly.

Baðst af­sök­un­ar á rasískri at­huga­semd

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren