Ófótósjoppuð mynd af fyrirsætunni Cindy Crawford fór sem eldur í sinu um netið í febrúar en myndin mun birtast í apríl-tölublaði Marie Claire. Crawford og ritstjórar Marie Claire fengu mikið hrós fyrir að vekja athygli á notkun myndvinnsluforrita sem gefa fólki gjarnan óraunverulega sýn á tískuheiminn. En ljósmyndarinn sem ber ábyrgð á myndinni er alls ekki sáttur.
Ljósmyndarinn segir að myndinni hafi verið stolið og lekið á netið og það sem meira er, hann segir einhvern hafa átt við myndina og skerpt á „göllum“ Crawford. Ljósmyndarinn hyggst leita réttar síns og hefur farið fram á að myndin verði ekki birt í blaðinu. Þessu var greint frá á heimasíðu Contactmusic.
Ritstjórar Marie Claire hafa þó haldið því fram að myndin sé algjörlega upprunaleg. „Hún er raunveruleg, heiðarleg og glæsileg.“
Ófótósjoppuð Cindy Crawford vekur eftirtekt