Leikkonan Cameron Diaz hefur alltaf verið í flottu líkamlegu formi. Þjálfaður líkami hennar vekur gjarnan athygli og allir vilja vita hver galdurinn er. Hún kveðst hafa komist í form með líkamsrækt og miklu kynlífi.
Diaz, sem gekk nýverið að eiga tónlistamanninn Benji Madden, lýsti þeirri líkamsrækt sem hún stundar í viðtali sem birtist í breska Cosmopolitan. Diaz fer reglulega í ræktina, borðar hollt og stundar mikið kynlíf að eigin sögn, þetta segir hún vera galdurinn að flottu líkamlegu formi.
„Það [kynlíf] er heilsusamlegt og nokkuð sem við þurfum að stunda af mörgum ástæðum,“ sagði Diaz sem fer líka reglulega í ræktina. „Þú verður bara að gera það. Sumir segja: „Líkami minn hafnar hreyfingu.“ En nei, hugur þinn hafnar hreyfingunni.“
Þá vitum við það.