Chris Brown er orðinn faðir

Chris Brown er sagður eiga níu mánaða barn.
Chris Brown er sagður eiga níu mánaða barn. mbl.is/AFP

Tónlistarmaðurinn Chris Brown er sagður vera orðinn faðir. Brown, sem hefur átt í stormasömu sambandi við fyrirsætuna Karrueche Tran á undanförnum árum, er sagður hafa eignast sitt fyrsta barn fyrir um níu mánuðum. Móðir barnsins mun vera hin 31 árs Nia. Nia og Brown hafa aldrei verið par en þau eru sögð ágætir vinir.

Heimildamaður TMZ segir Brown vera „hamingjusaman“ í föðurhlutverkinu sem hann hefur farið leynt með síðan barnið kom í heiminn. Fregnir herma að Brown og Nia hafi ekki gert formlegt samkomulag hvað varðar meðlag og uppeldi barnsins.

Hvorki Brown né talsmaður hans hafa tjáð sig um orðróminn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes