Myndband af nöktum karlmanni að flýja Buckingham-höll með því að klifra út um gluggann hefur vakið mikla athygli á netinu á undanförnum dögum. En nú er komið í ljós að um sviðsetningu var að ræða.
Leikkonan Elizabeth Hurley ber ábyrgð á atriðinu en það er hluti af kynningu fyrir nýja þáttaröð, The Royals. Þættirnir fjalla um nútímalega konungsfjölskyldu og Hurley leikur drottninguna.
Þættirnir The Royals hefja göngu sína í Bandaríkjunum hinn 15. mars.