Hefur hafnað bónorði átta sinnum

Leikkonan Anne Heche hefur ekki áhuga á að giftast kærasta …
Leikkonan Anne Heche hefur ekki áhuga á að giftast kærasta sínum. AFP

Leikkonan Anne Heche hefur hafnað bónorði frá kærasta sínum, James Tupper, átta sinnum. Tupper hefur beðið Heche um að giftast sér á hverju ári síðan þau byrjuðu saman fyrir átta árum en hún hefur ekki áhuga á að ganga í það heilaga. Hann gefst þó ekki upp.

Heche greindi frá því að kærasti hennar hefur gert ýmislegt til að vekja áhuga hjá henni en hann hefur til að mynda fengið son þeirra til að hjálpa sér. Heche kveðst hlakka til að fá bónorð á ári hverju vegna þess að hún fær alltaf að eiga trúlofunarhringana þrátt fyrir að hafna bónorðinu. Þessu sagði hún frá í spjallþætti Seth Meyers.

„Nei! Ég á átta hringi núna,“ sagði Heche í gríni aðspurð hvort að hún ætlaði einhvern tímann að játast kærasta sínum.

Heche var gift leikaranum Coley Laffon til ársins 2009. Hún gaf þá í skyn að skilnaðurinn hefði haft þau áhrif á sig að hún myndi ekki vilja ganga í það heilaga aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes