North West verður ekki í KUWTK

Foreldrar North West vilja ekki að hún alist upp í …
Foreldrar North West vilja ekki að hún alist upp í raunveruleikasjónvarpi. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian vill ekki að dóttir sín, North West, komi fram í raunveruleikaþáttunum Keeping Up With The Kardashian (KUWTK) en þættirnir fjalla um Kardashian-Jenner fjölskylduna. Eiginmaður Kim, Kanye West, er sammála konu sinni og vill ekki að 18 mánaða dóttir þeirra verði stjarna í þáttunum. Þetta munu þau hafa ákveðið strax í upphafi, áður en barnið kom í heiminn.

„Kim og Kanye gerð framleiðendum þáttanna þetta ljóst snemma, að þetta væri ekki til umræðu,“ sagði heimildamaður Radar Online. „Þau vilja gefa North næði og vilja leyfa henni að vera barn í friði, fjarri öllum myndavélum.“ Fregnir herma þá að parið hafi hafnað himinhárri launahækkun sem þeim bauðst ef dóttir þeirra yrði stjarna í þáttunum. Heimildamaðurinn sagði þó að North myndi eflaust birtast eitthvað í þáttunum því annað væri óhjákvæmilegt. „Það koma atriði þar sem North verður hluti af hóp, þá er ómögulegt að klippa hana út. E! Bauð þeim mikla peninga en þau höfnuðu þeim.“

Þættirnir hófu göngu sína árið 2007. Síðan þá hafa þeir náð miklum vinsældum og sagan segir að fjölskyldan hafi nýverið skrifað undir samning við E! um að gera fleiri raunveruleikaþætti næstu fjögur árin.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes