Afar skapstyggur greifingi hélt lúxushóteli í miðborg Stokkhólms í gíslingu snemma í morgun.
Það var um fimmleytið í morgun, klukkan fjögur að íslenskum tíma, sem greifinginn tók upp á því að koma í veg fyrir að fólk kæmist inn eða út af Radisson Blu hótelinu við Norrmalm í Stokkhólmi. Í um fjörtíu mínútur kom greifinginn í veg fyrir að fólk kæmist úr bílum sínum og gæti sótt farangur sinn, segir á vef lögreglunnar í Stokkhólmi í morgun.
Að lokum neyddist lögreglan til þess að fá dýraverndarsamtök til að aðstoða við að koma greifingjanum í burtu. Ekki er vitað hvað það var sem reitti greifingjann til reiði.