Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera heimsfrægur og því fékk fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner að kynnast á tískuvikunni í París í gær.
Þegar Kendall yfirgaf Balmain-tískusýninguna þurfti hún aðstoð lífvarða til að komast í gegnum þann mikla fólksfjölda sem beið hennar fyrir utan. Sumir öskruðu á meðan aðrir tóku myndir af fyrirsætunni.
Myndband af atvikinu birtist á heimasíðu Daily Mail.