Söngkonan Taylor Swift og tónlistarmaðurinn Calvin Harris eru sögð eiga í ástarsambandi en þau hafa sést nokkrum sinnum saman á undanförnum vikum. Swift og Harris fóru til að mynda saman í verslunarferð á miðvikudaginn þar sem þau voru stödd í Nashville.
Swift og Harris byrjuðu á að fá sér að borða í verslunarmiðstöðinni og kíktu svo í nokkrar búðir. Þau spjölluðu svo við aðdáendur og virtust hafa gaman af því að sögn sjónarvotta.
Samkvæmt heimildum TMZ fór fólk að gruna að eitthvað væri á milli þeirra Swift og Harris í febrúar þegar þau döðruðu hvort við annað á Brit Awards-hátíðinni. En hvorki Swift né Harris hafa tjáð sig um orðróminn.
Swift hefur komið víða við en hún hefur átt í ástarsambandi við menn á borð við Joe Jonas, John Mayer, Jake Gyllenhaal og Harry Styles. Harris hefur þá verið kenndur við söngkonurnar Ritu Ora og Ellie Goulding.