Söngkonan Jennifer Lopez hætti með dansaranum Casper Smart fyrir níu mánuðum en það virðist vera afar gott á milli þeirra ennþá vegna þess að þau kysstust á tökustað American Idol á miðvikudaginn.
Elskendurnir fyrrverandi kysstust fyrir utan búningsherbergi Lopez rétt áður en þau yfirgáfu tökustaðinn í sameiningu. Ljósmyndarar voru ekki langt undan þegar þau kysstust og stigu svo saman upp í bíl og keyrðu á brott.
Fregnir herma að þau Lopez og Smart séu byrjuð aftur saman en dansarinn mætti með Lopez á frumsýningu kvikmyndarinnar Home á dögunum.